Allir nemendur skólans fá 1 boðsmiða á nemendasýninguna 1. maí. Sýningar verða kl. 17:00 og 20:00
Staðfesta þarf í miðasölu Borgarleikhússins í síma: 568-8000 Miðasala á sýninguna er hafin.
Miðaverð:kr. 2000 fyrir fullorðna kr. 1000 fyrir börn undir 12 ára Panta þarf í miðasölu Borgarleikhússins.
Stelpurnar okkar komnar heim frá Turku!
Sýningin 17. apríl í nýju tónlistarhöllinni í Turku í Finnlandi sem Halla Þórðardóttir, Hjördís Gestsdóttir, Hildur Ólafsdóttir og Ólöf Gunnarsdóttir, nemendur á lokaári í klassískum dansi tóku þátt í, tókst með miklum ágætum. Gestakennari skólans Elli Laukkanen samdi og æfði verkið fyrir hópinn meðan hún var stödd hér á landi frá 4. jan. – 31. mars s.l.. Þetta er í fyrsta skipti sem stelpurnar dansa við frumsamið verk leikið af hljómsveit. David Yoken sem sá um projekt hefur áhuga á að senda hljómsveitarstjórann hingað og æfa verkið með tónlistarnemendum í LHÍ og sýna svo verkið hér á Íslandi með þeim Höllu, Hjördísi, Hildi og Ólöfu. Við getum verið stolt af okkar nemendum. Til hamingju stelpur.