Birgitte Heide

fagstjóri klassískrar listdansbrautar

Birgitte Heide nam við Listdansskóla Þjóðleikhússins (nú Listdansskóli Íslands) frá 1969-1976. Hún hóf störf sem dansari hjá Íslenska dansflokknum í september 1976. Í febrúar 1977 var hún fastráðin við flokkinn og starfaði þar óslitið til ársloka 1999.
Birgitte tókst þar á við flesta þá strauma og stefnur sem dansflokkurinn fékkst við í rúma tvo áratugi og vann þar með fjölda listamanna, ballettmeisturum, gestakennurum, danshöfundum, dönsurum, leikurum og leikstjórum.
Verkefnin voru fjölmörg og fjölbreytt og dansaði hún bæði í klassískum verkum eins og Giselle, Paquita, Öskubusku, Svanavatninu, Les Sylphides, La Sylphide, Þyrnirós, Hnotubrjótnum, Coppeliu ofl, og svo hinsvegar í nútímadansverkum eftir td. Rui Horta, Jochen Ulrich, Jorma Uotinen, Birgit Culberg, Ed Wuppe, Nönnu Ólafsdóttur, Hlíf Svavarsdóttur ofl. Einnig tók hún þátt í óperum, söngleikjum og leikritum.

Að loknum dansferlinum fór Birgitte í nám í ballettkennslufræði (Ballett-Pädagoge und Trainer) hjá dansdeild International Theater Institute (ITI, Unesco) í Austurríki. Námið var leitt af Prof. Dr. Karol Tóth frá GITIS háskólanum í Moskvu. Hún lauk ballettkennaraprófi 2004.Birgitte hefur sótt fjölmörg ballettkennaranámskeið hjá ballettríkisskólum Svíþjóðar, Noregs og Finnlands. Námskeiðin voru skipuð kennurum The Canada’s National Balletschool í Toronto.Birgitte var kennari með hléum hjá Listdansskóla Þjóðleikhússins/íslands 1981-1999 og  hjá Íslenska Dansflokknum 1999-20011.

Hún hefur setið í stjórn Félags Íslenskra listdansara og verið fulltrúi þess félags í Leiklistarráði og Leiklistarsambandi íslands. Birgitte var fastráðinn kennari við Listdansskóla Íslands 1999 og hefur verið fagstjóri klassískrar brautar í framhaldsdeild skólans frá 2001.

Metnaðarfullt dansnám á grunn- og framhaldsstigi

%d bloggers like this: